loksins nenni ég að blogga!
ég ákvað að setjast nú niður og blogga eitthvað, kominn tími til!
það fer að hausta, maður finnur alveg fyrir því.... myrkrið komið, næturkulti farinn að segja til sín og rok og rigning.... brrrr
Ég heyrði það að hér á íslandi væru púkar sem skríða inn í fólk og setjast þar að... Fitu og át-púki, leti-púki og þreytu-púki. Þeir hafa allir heimsótt mig! Er ekki frá því að sjónvarpspúki hafi kíkt til mín líka... er orðinn þátta-fíkill! Enda er svo svakalega gott þegar veðrið er ekki gott að skríða uppí sófa eftir vinnudaginn, eða áður en maður fer í vinnu og horfa á Tíví! Er komin með stöð tvö og er alveg komin inn í glæstar og nágranna aftur!!! Ég get ekki hætt að borða óhollt! Vill eitthver ættleiða fitu og át-púkann sem er sestur að í mallanum mínum? Vinsamlega hafið þá samband í síma 8664653. Þegar ég nenni í stúdíóið þá fer ég heim og borða kalóríurnar sem ég var að brenna bara aftur.... þetta gengur ekki. Mig langar í eitt stykki hollustu púka. Hafið þið séð hann eitthverstaðar á vappi?
Fór uppá skaga í endaðan ágúst... og var að keyra með tvö yngstu systkini mín heim á leið. Þá sjáum við unga stúlku labba yfir götuna og í kjölfarið átti sér stað mjög skemmtilegt samtal.
Brynja: Þessi stelpa, hún heitir Salómon.
Lóa: Ha? Salómon?
Brynja: Já!!
Lóa: Ertu viss um að hún heitir ekki Salóme?
Brynja: uuu jú, salóme! úbbs...
Ingimundur: Hver skýrir börnin sín eiginlega eftir spægipylsu?
Lóa: Ha? Neeei, það er Salamí!
Ingimundur: Já úbbs...
Hahahah mér fannst þetta ógeðslega fyndið! ;)
Annars er ekkert að frétta þannig séð..... ég er farin að drekka rosalega mikið kaffi, aðallega í vinnunni samt... og þar af leiðandi pissa ég eins og gamalt fólk með þvagfærasýkingu!!!! ég vakna svona 7 sinnum á nóttunni til að fara fram að pissa! Það raskar svefninum svo mikið... og svo þarf ég að skríða úr rúminu, úr heitri sænginni og fram í myrkrið... er líka viss um að það sé draugur í íbúðinni minni... sé hann alltaf þegar ég fer fram og er rosalega hrædd við hann. Annahvort það eða að ég er ýmindunarveik og myrkfælin. (þarf nebbla að labba soldið til að geta kveikt ljósið)! Svo þegar ég leggst aftur uppí rúm dettur Magga í hug að leggjast á bakið og hrjóta alveg svakalega fyrir kærustuna! þannig að nokkrar mínútur fara í að velta honum á hliðina eða sparka kröftulega í síðuna á honum svo hann velti sér. Stundum nægir bara að nudda hárinu upp við andlitið á honum og kitla hann, þá leggst hann á hliðina.... bara svona þegar ég er ekki í stuði til að meiða.
Rosalega er ég að væla mikið núna... vorkennið þið mér ekki rosalega? :)
Er að fara að sækja magga.... svo er hann að fara í trailer-prófið. Þá er hann búinn með meiraprófið svo hann geti keypt stóran vörubíl því konan hans er að fitna svo mikið, þarf stórann trukk undir rassinn á henni ef hún hættir ekki að borða vöfflur með rjóma og nammi!

Ég vil fá komment, þá væri ég afskaplega glöð og kanski blogga ég þá oftar.
Knús á línuna
;x
Road Trip a la Lóa!
Vaknaði í morgun, og sá ekki ský á himni... hugsaði með mér hvað það er leiðinlegt að fara að vinna inni í allan dag þegar veðrið er svona yndislegt, gæti legið úti í sólbaði! Leit síðan á hitamælirinn, sem sýndi 5 stiga hita! úffff..... það er virkilega að koma haust! Næturkuldinn og myrkrið komið! fékk vægt raunveruleikasjokk!
Summarið er búið að vera svo skemmtilegt, og fljótt að líða.... vildi óska að það væri alltaf sumar. Nema rétt yfir jólin, þá má snjóa ;)
Var í fírihelgi núna seinast... eyddi henni í flensu. Náði samt að fara í road trip með Amy minni yfir í Laugardal þar sem Maggi og vinir voru að veiða (Brokeback Mountain??) Maður er í svona klukkutíma og korter að keyra þangað. Til að byrja með þá var ég að tala í símann þegar ég HÉLT að ég væri að keyra framhjá Ögri.... villtist sökum þess og keyrði þangað til að ég kom að "dead end" og sumarbústað sem ég kannaðist ekkert við! Náði að bakka á örþunnum vegi og hélt leið minni áfram. Maggi er marg búinn að segja mér hvað allir firðirnir heita í djúpinu ásamt pabba mínum alla mína barnæsku en eg virðist ekki ætla að læra þetta..... get það stundum þegar ég er farþegi, en greinilega ekki sem bílstjóri. Þetta var btw í fyrsta skiptið sem ég keyri firðina fallegu, alltaf setið í farþegasætinu og sungið sálma mína hátt og snjallt meðan ég læt Magga um aksturinn. Nóg um það. ég loksins komst í pínku símasamband og tjáði magga um það að ég væri týnd! Þangað til að ég sá Vigur framundan.... þá vissum við að við vorum að komast á leiðarenda. Fann aldeilis staðinn, mikið gert grín af mér. Svo hélt höfuðverkurinn áfram að aukast og beinverkir komnir í spilið ásamt því að hálsinn á mér var stokkbólginn.... ákvað þá að halda heim á leið þó svo að ég hefði viljað vera lengur og allavega ná einum fisk! Þegar í bílinn kom tókum við eftir bensínmælirnum.... ÚBBS!!! Ekki mikið bensín eftir.... fattaði ekki að passa það! Og ég með 3 ára barn, 14 ára gamlan hund og taugaveiklaða Amy með mér, eins og eins stór happý fjölskylda! ;) Svo var ég farin að sjá ofsjónir, en þeir sem hafa þekkt mig lengi vita eflaust að ég er ekki með fullkomna sjón... og sagði allt í einu
"OMG sástu grjótið!!!" og sveigði frá.... Amy hugsaði sig lengi um og sagði svo
"Lóa mín, þetta var rolla!"
"ó" Sagði ég
"á ég að keyra?" -Amy orðin hrædd.... um meira heldur en bensínljósið.....
En við dóum ekki ráðalausar, núllstilltum mælinn því maggi sagði að það væri garenterað að við kæmumst amk 60 km á ljósinu.... mælirinn var farinn að sýna um 50 km og stikan komin fyrir neðan núllið svo við hringdum í Svölu um leið og við komumst í samband.... Svala hélt af stað á móti okkur með brúsa og trekt að bjarga aulunum ;) Náðum á flugvellinn, jeeeiiiijjjj! ;)
Er semsagt ekki beint týpan í að fara í road trip, það fylgir mér alltaf eitthvað tremma! en það gerir ferðir bara skemmtilegri... eftirá.
BIG vinnutörn framundan.... vinnavinnavinna
Síðan er Afmæli hjá Amy... Djammdjammdjamm
SVO fer ég í vikufrí uppá Akranes til mö, pa og co. Jeijeijei
Læt mynd af mér Amy og Erlu fylgja.... þennan dag var SVO æðislegt veður og obboslega gaman hjá okkur, minnilegasti dagur sumarsins... fórum á sjóinn að syngja, hlæja og fá smá brúnku ;) 
Tvö afmæli í dag

Hún mamma mín er alveg yndislegust í heimi.... hún kom í heiminn 6 heilbrigðum börnum eins og ekkert sé sjálfsagðara! Mamma er sú sem maður hringir fyrst í ef manni liggur eitthvað á hjarta eða fær stórar fréttir sem maður vill deila með þeim mikilvægasta ;)

Hér er hún konan ásamt manni í lífi hennar,hr. maggi smiður a.k.a. besta pabba í heimi ;x
Mamma, ég elska þig, eigðu dásamlegan dag ;x
Einnig á Fanndísin mín yndisfagra afmæli í dag, 6 ára prinsessa!

Til hamingju með daginn elsku ástin mín, ég gef þér pakka á eftir ;x
sólsólskínámigskýskýburtmeðþig...gotteraðlátasólinaskínásig...sólsólskínámig
Var að vinna til 4 í dag, fór svo beint út í sólina með amy og erlu og enduðum á bát með ástþóri og magga að syngja, horfa á máva gubba og sóla okkur!
Seinasta kvöld langa manga í kvöld.... við stöllur allar í fríi á morgun (gerist ekki oft), það kallar á bjór ;)
Ég er að fara að vinna alla verslunarmannahelgina :( Get KANSKI djammað á sunnudag, sjáum hvað setur
Ég er afskaplega hamingjusöm
Ég er að fá pening frá skattinum á morgun
Ég er komin með smá lit
Ég er búin að vera með ælupest
Ég er komin með matarlistina aftur
Ég er alveg að pissa á mig
Ble í bil - knús á línuna ;x
Með brunninn nebba og þvottafjall
Nóg af kvarti... sumarið er búið að vera yndislegt so far! Um þar seinustu helgi þá var mín í fríi og ákvað að skella mér í sveitinna Norður á svona "mini" ættarmót oh hitta fjölskyldu mína og aðra ættingja! Þar var farið í sveitafötin, tjaldað fellihýsinu sem tengdó voru svo góð að lána okkur og sungið við gítar og harmonikku, hlegið, spjallað og knúsað! Ofboðslega skemmtileg helgi! ;)
Núna þessa helgi ákvað ég að fara ásamt nokkrum vinum og mínum heittelskaða á hátíðina á flæðareyri, enn og aftur var því farið í útileigustemmingu og sungið og dansað á EKTA sveitaballi með Erlunni minni!!! Svo ég er búin að fara í tvær útileigur og sólarlandaferð! Ekki slæmt!
Sit núna á næturvakt að nota internet sjúkrahússins til að láta vita af mér....
En aðal erindi með þessu bloggi mínu er afmæliskveðja. Hún arndís mín er 22 ára í dag!

Jii minn eini hvað ég sakna þín elskan, hugsa stöðugt til þín! Farðu að drýfa þig HEIM! :)


Manstu útileiguna okkar í Syðridal sem við fórum BARA tvær! Földum okkur bak við steina þó svo að við vorum eitthverstaðar LENGST út í rassgati með 3 tegundir af sígarettum til að prófa, algjörir prakkarar hahahahahahha ;) Sátum svo inn í tjaldi með beikonsnakk að hlusta á Westlife og búa til okkar eigin túlkun og táknmál á lögum þeirra! Það sem við gátum hlustað á þetta strákaband! Við pældum svo mikið í textunum, þeir sungu svo fallega um ástina og við dreymdum um að eitthver strákur myndi hugsa svona til okkar eithvern daginn!

Ohhh, svo stundirnar okkar sem við áttum á shell í bolungarvík þegar við unnum saman sem sjoppuskvísur! Stálumst í helíum kútinn inná lager og komum svo fram með gas-röddinni og sögðum "get ég aðstoðað" ;) Sjitt hvað ég á margar minningar, er skellihlæjandi núna í bland við nístandi söknuð! þú ert bestust....
Hafðu það rosalega gott í dag elskan og njóttu þess að vera orðin árinu eldri ;xxx
Afmæli!!!!! ;)

Elsku Maggi minn er 24 ára í dag!


Til hamingju með daginn ástin mín ;x

Elska þig mest í heimi
Loksins nenni ég að blogga

Svo á sunnudeginum var pakkað í þynnkunni og gert allt klárt fyrir krítarferðina og keyrt af stað suður á mánudeginum. Á þriðjudagsnótt var vaknað eld snemma um morguninn, eða rétt fyrir 4 um nóttina til að halda af stað út á Keflavíkurflugvöll. Alveg mögnuð tilfinning þegar maður er kominn út á völlinn þegar maður áttar sig á að maður er að fara í SUMARFRÍ í sólina ;) Lentum í Chania eftir 6 tíma flug í hitann um 5 leitið á Grískum tíma (eru 3 tímum á undan okkar tíma)! fórum með rútu til Agia Marina þar sem ströndin okkar var og tékkuðum okkur inn á Skala, komum okkur fyrir í íbúðinni okkar og fórum svo og fengum okkur gott að borða. Ó mæ god hvað maturinn þarna er YNDISLEGA FÁRANLEGA góður! Steikur og flottur matur ásamt grísku sallati, eftirrét og bjór og ouzo fengið sér í hvert mál, alla daga! Enda ekkert dýrt að borða þarna! Maður var í vandræðum með að klára af disknum sínum!
Nenni ekki að gera ferðasöguna alla frá details en við fórum meðal annars á ströndina (enn ekki hvað), gókart, á hjólabát, Keilu, til Chania í verslunarferð og yfir í Plataniaz sem er borg við hliðiná! Þar fórum við að borða og skoða okkur um. Síðan var farið í minigolf, í vatnsleikjagarðinn sem var RISAstór! Og þess á milli var legið í sólbaði, drukkið bjór, borðað góðan mat, labbað um, sofið út, dansað, sungið á karókíbar, farið pöbbarölt og margt fleira.
Tíminn var ansi fljótur að líða og ég fer bókað aftur á næsta ári! Þetta er yndislegt og er mjög ánægð að vera búin að fara til sólarlanda og samt eiga júní, júlí og ágúst hérna á íslandinu, þó svo að það mætti fara að hlýna aðeiins!!!!
Svo það sem framundan er í sumar er bara vinnan, ræktin, sólin, kærastinn, vinirnir og fjölskyldan! Njóta þess að vera til ;)
læt þetta duga í bili, fer ALVEG að fara að setja myndir inn, bæði af útskriftinni og af krítarferðinni. Læt þó nokkrar fylgja hérna með.
Látið svo vita af lesningu ykkar elskur ;)

Svona var best að vera í sólbaði, hitinn var svo mikill að það var gott að skvetta á sig köldu sundlaugarvatninu þegar byrjuð var að myndast pura :)

Maggi að fá sér einn kaldann Mythos í hitanum! (Mythos er Grískur bjór, alveg svakalega góður)

Við Maggi í Go-cart ;)

Nokkrar rennibrautir í Vatnsleikjagarðinum - Jiii hvað þetta var gaman, fór í þessa röndóttu og svörtu líka!
'I solinni
aetla bara ad hafa tetta stutt, kved ad sinni tid tarna a jardskjalfta landinu i rigningunni hahahahahahahhahahahah!
Betra er langlífi en harðlífi
Í fréttum er þetta helst:
Ø Guðmunda systir útskrifaðist sem kjólasveinn (já ég hló líka þegar ég sá þetta orð) í gær, svo innilega til hamingju með það elsku ELSKU systan mín! Obboslega gott að eiga saumakonu í fjölskyldunni J
Ø Ég tók seinasta prófið mitt í gær, sem þýðir það að ég er BÚIN í prófum!!! Jeeeeeiiiiiijjjjjj, klappa fyrir mér!
Ø Er búin að fá nokkrar einkunir og þær líta mjög vel út, er búin að vita fyrir víst að ég er búin að ná öllu svo ég þarf ekki að lifa í stressi né kvíða lengur, er að FARA AÐ ÚTSKRIFAST!
Ø Er á næturvöktum um helgina J
Ø Er nánast í fríi alla næstu viku, sem er geggt skrítið, enginn skóli, lítil sem engin vinna! Svo ég mun bara dingla mér heima! Reyndar alveg nóg að gera, böns af þvotti bíður mín og ansi mikil þrif! Maður er ekki beint duglegur að hugsa um heimilið þegar maður er límdur við skólabækurnar.
Ø Evran er að lækka........ *blikk blikk* VONA það allavega! Týpískt að hún sé svona svakalega há akkúrat þegar ég er að fara út!
Ø Þarf að fara að DRULLAST til að hreyfa mig! DEM, Amy, Erla, Svala, Sigga...... Hvar eru spörkin sem þið, sem VINKONUR eiga að gefa mér í rassinn?????? Eruð ekki að standa ykkur! Kenni ykkur um hliðarspikið mitt, þið eigið að passa uppá mig! Maggi, þú líka!
Ø Er með þvílíkan kvíða í hvert skipti sem ég stíg út úr bílnum, og hleyp inn alltaf eins og það sé ljón á eftir mér! Er svo hrædd við þessar helvítis randaflugur! Skil ekki af hverju maður er svona hræddur við þetta, en ég er VIRKILEGA hrædd! Langar að fara að gráta þegar ég sé þær!
Ø Ég var uppgötvuð sem úrvals hárblásameistari í gær.... ekki orð um það meir
Ø Ætla að fara að gera eitthvað af viti.... verið nú dugleg að láta vita af ykkur, ALLIR!



